Go To Top

Jólakötturinn Lyrics

Þið kannist við jólaköttinn
Sá köttur var gríðarstór
Fólk vissi ekki hvaðan hann kom
Eða hvert hann fór

Hann glennti upp glyrnurnar sínar
Glóandi báðar tvær
Það var ekki heiglum hent
Að horfa í þær

Kamparnir beittir sem broddar
Upp úr bakinu kryppa há
Og klærnar á loðinni löpp
Var ljótt að sjá

Því var það að konurnar kepptust
Við kamba og vefstól og rokk
Og prjónuðu litfagran lepp
Eða lítinn sokk

Því kötturinn mátti ekki koma
Og krækja í börnin smá
Þau urðu að fá sína flík
Þeim fullorðnu hjá

Og er kveikt var á jólakvöldið
Og kötturinn gægðist inn
Stóðu börnin bísperrt og rjóð
Með böggulinn sinn

Hann veifaði stélinu sterka
Hann stökk og hann klóraði og blés
Og var ýmist upp í dal
Eða út um nes

Hann sveimaði soltinn og grimmur
Í sárköldum jólasnæ
Og vakti í hjörtunum hroll
Á hverjum bæ

Ef mjálmað var aumlega úti
Var ólukkan samstundis vís
Allir vissu að hann veiddi menn
En vildi ekki mýst

Hann lagðist á fátæka fólkið
Sem fékk enga nýja spjör
Fyrir jólin, og baslaði og bjó
Við bágust kjör

Frá því tók hann ætíð í einu
Allan þess jólamat
Og át það svo oftast nær sjálft
Ef hann gat'

Og sum höfðu fengið svuntu
Og sum höfðu fengið skó
Eða eitthvað sem þótti þarft
En það var nóg

Því kisa mátti engan eta
Sem einhverja flíkina hlaut
Hún hvæsti því heldur ljót
Og hljóp á braut

Hvort enn er hún til veit ég ekki
En aum yrði hennar för
Ef allir eignuðust næst
Einhverja spjör

Þið hafið nú kannske í huga
Að hjálpa ef þörf verður á
Máske að enn finnist einhver börn
Sem ekkert fá

Máske að leitin að þeim sem líða
Af ljósskorti heims um ból
Gefi ykkur góðan dag
Og gleðileg jól

Jólakötturinn Lyrics performed by Bj%C3%B6rk are property and copyright of the authors, artists and labels. You should note that Jólakötturinn Lyrics performed by Bj%C3%B6rk is only provided for educational purposes only and if you like the song you should buy the CD


What is the meaning of Jólakötturinn lyrics?