Go To Top

Pæklaðar Plómur Lyrics

þú hjálpar ekki neinum
með að horfa bara á hann
það hefur engin áhrif
þótt þúeflaust meinir vel
og eins er víst þú nálagst ekki
neinn með því að flá hann
þú nærð engum með góðu móti
þannig út úr skel

Pæklaðar plómur
parkinsonveiki
en allt er þetta yfirleitt
eitthvað á reiki
við verðum bara að velja þeim
vinalegri leiki
pæklaðar plómur
parkinsonveiki

Þú hjálpar ekki neinum
með að vera bara á verði
vörnin reynist haldlaus
og hún gjörir enga stoð
því þú hugsar öll þín ráð
undir hangandi sverði
og hefur þér til skjóls
þessa götóttu voð

Pæklaðar plómur...

Það glæðir ekki vonina
að vera af þessum heimi
en viðjarnár má slíta
eins og hvert annað haft
það bætir ekki úr skák
þótt þig bærilega dreymi
ef þú bindur allt þitt trúss
við skilvitlegan kraft

Pæklaðar plómur...

Pæklaðar Plómur Lyrics performed by The Sugarcubes are property and copyright of the authors, artists and labels. You should note that Pæklaðar Plómur Lyrics performed by The Sugarcubes is only provided for educational purposes only and if you like the song you should buy the CD


What is the meaning of Pæklaðar Plómur lyrics?