Go To Top

Fjöll Í Austri Fagurblá Lyrics

Fjöll í austri fagurblá
freista dalabarnsins
Ungur fylgir æskuþrá
upp til jökulhjarnsins

Sveimað heimahögum frá
hef ég vors á degi,
víða stíða þræddi þá
þunga hraunavegi

Heiðin breiða hugumkær
hvetur viljann ofar
Leiðin seiðir, fráum fær,
fögrum sýnum lofar

Gangan sækist öruggt enn
urðarróti móti
Einatt hlutu heiðamenn
höggvinn fót á grjóti

Hver, sem ofar á að ná,
einskis metið getur
þótt í fangið fái sá
fjúk og hretið betur

Anda heitum yndi nóg
unaðsreitir geyma
Seinna leitar þráin þó
þinna sveita heima

Fjöll Í Austri Fagurblá Lyrics performed by Sigur Ros are property and copyright of the authors, artists and labels. You should note that Fjöll Í Austri Fagurblá Lyrics performed by Sigur Ros is only provided for educational purposes only and if you like the song you should buy the CD


What is the meaning of Fjöll Í Austri Fagurblá lyrics?