Go To Top

Kem Ég Enn Af Köldum Heiðum Lyrics

Kem ég enn af köldum heiðum
kæra fljóð, til þín.
Frerasvip á fannabreiðum
fengu stefin mín.
Ég hef reikað eftir ísum
allan veg til þín
til að kveikja von með vísum.
Var nú þörfin brýn.
Hríðarvöldin vetrarríku
villtan tróðu dans;
von að köld í veðri slíku
væru ljóðin manns.
Blik frá rauðum ástareldi
eftir nauðir mér
sumarauðugt sólarveldi
síðan bauð hjá þér.
Ástin meðan öllu réði
okkar geði hjá
allt var kveðið eins og gleði
entist héðan frá.

Kem Ég Enn Af Köldum Heiðum Lyrics performed by Sigur Ros are property and copyright of the authors, artists and labels. You should note that Kem Ég Enn Af Köldum Heiðum Lyrics performed by Sigur Ros is only provided for educational purposes only and if you like the song you should buy the CD


What is the meaning of Kem Ég Enn Af Köldum Heiðum lyrics?